10.6.2008 | 19:36
Vinir ..
Þessa dagana er ég að safna mér vinum Hver vill vera memm ?
Ég kann ekki að vera í sumarfríi !! Var t.d. í rúminu til kl 1 í dag .. uss suss suss ... Fann mér sem betur fer tvö verkefni í dag og náði að klára þau bæði ** Er búin að gera fyrstu drög að stundatöflunni minni fyrir næsta ár, mjög spennandi og sat líka í Siggfúsarhúsinu og tók við pöntunum fyrir hina stórglæsilegu Fjarðabyggðargalla .. Sko mig
Annað sem ég kann ekki - að vera heima hjá mér !! Ég bara borða óhollt og fæ bólur OJ ..
Yfir og út ..
Athugasemdir
Maður kemst varla yfir það á einu kvöldi að lesa bloggsíður hjá ykkur, það eru bara allir að blogga en mér finnst það reyndar ekkert leiðinlegt. Ég skal alveg vera vinur þinn en samt ekki bloggvinur held ég verði aldrei í bloggheiminum
Rósa Dögg (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 23:11
Vá hvað ég er ánægð að þið eruð allar komnar með blogg kannski maður opni sér líka hehegehehe nóg er allavega af brussuskotum hér á bæ.
En ég skil þig vel að kunna ekki að vera í sumarfríi, þú ert alltaf að vera að gera eitthvað . En hlýtur að hafa verið mjög kosý að vera svona lengi uppi rúmi..
Jæja vertu dugleg að blogga stelpa
Steinunn (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 10:50
Jeij..gaman að þú sért komin með blogg svo ég geti fylgst með þér sæta mín.
Æjæjæjæj...er ekki leiðinlegt líka að missa nágrannann yfir sumartímann sem kemur svo oft í heimsókn?????
Eigðu bara gott sumarfrí sæta mín..styttist ekki í útlöndin?
Kveðja frá framkvæmdarstjórum Leifturs á Óló og sjáumst á Nikulás
Jóhanna (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:03
OMG hvað ég þekki sjálfa mig í þessu. Verð að hafa einhver plön í sumarfríinu. Annars er það bara of mikill svefn (eða snúa sólarhringnum við) og svo éta.. éta éta éta
Jóna Á. Gísladóttir, 12.6.2008 kl. 10:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.