15.6.2008 | 18:49
Ahhh ..
Loksins loksins .. Viktor er komin heim Mikið er ég glöð .. Við erum búin að brasa ýmislegt í dag þó svo að hann sé mest búin að vera úti að leika sér við vini sína sem hann saknaði mikið. Við sóttum okkur smá möl í garðinn, horfðum á Kalla á kajak í ánni og prinsinn fékk að keyra aðeins ! Rosa gaman, ekkert mál að leyfa honum að taka smá í þegar maður er á sjálfskiptum bíl. Eftir ferðina þá sagði hann mér að hann væri nú ekki vanur að fá að stíga á bensíngjöfina hjá pabba sínum ** úps * Svo er það bara pizza og kósý í kvöld ..
Akureyri .. Já hvað get ég sagt, mikið borðað, mikið keypt (þurftum að nota pallinn á leiðinni heim) og mikið slakað á. Við vorum nú í rólegri kantinum þarna, við t.d. ældum ekki á götuna eða brutum flöskur ! Það var inn þarna .. eh he .. Við fórum á Sex and the city í bíó, vá hvað hún er skemmtileg. Ég er ekki frá því að mig hafi langað til að vera ástfanginn þessa tvo tíma sem myndin var. Á föstudaginn fórum við á smá bar-rölt .. Kíktum á Kaffi Karólínu með Dýrunni og co.
Laugardagskvöldið var svo sófa / bjór stemmning á Mýrargötunni Ljúft
Gaman að sjá hvað margir kíkja hingað inn
8 dagar í Tenerife
Athugasemdir
úúúúú..... bara 8 dagar!!!!
Stella Rán, 15.6.2008 kl. 19:56
ó já .. næstum 7 núna
Hrafnhildur Þórarinsdóttir, 15.6.2008 kl. 23:16
hehehe var einmitt að skoða veðrið þar núna , það er 19¨hiti akkurat núna þar nice
æ sá tilboð sem er svoooooo freistandi, 160.000 fyrir alla fjölsk til Kanareyjar í 2 vikur
Steinunn (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.