0100001 ..

.. 0100001 var númerið á auðkennislyklinum mínum áðan .. Bara gaman af því ;) Held að þetta sé lukku merki og nú verði ég rík á meðan aðrir verði fátækir. Annars held ég að Ísland sé ekkert að fara til helvítis, við þurfum bara að fara varlega með peninga og passa allt sem við eigum. Aldrei hef ég átt neitt nema skuldir og ég held að ég sé ekkert verri manneskja fyrir það. Viktor hefur líka bara haft gott af því að alast ekki upp við mikla peninga og fá allt upp í hendurnar. Hann kann að meta það sem hann á (enda keypt mikið af því sjálfur) og skilur það vel að maður verður að vinna fyrir því sem maður ætlar að fá.

Við stelpurnar skiluðum síðasta hóp-verkefninu okkar í gær, og mikið er ég glöð. Núna bíða aðeins þrjár ritgerðir og nokkur önnur verkefni. Verst að ég er mjög duglega að borða nammi á meðan ég læri svo aukakílóin sitja sem fastast og vilja ekki burt. Ég enda kannski bara spikfeit og vel menntuð .. He he ..

gullið

Hérna er svo gullið, að hugsa sér að hann skuli hafa verið á leiðinni á haugana .. he he .. Ég þarf aðeins að setja hann í smá make over en það er bara gaman !

Pabbi á afmæli í dag .. Til hamingju með það ungi maður ;) Náði ekkert að hitta hann í dag, hann er alltaf að vinna kallinn .. Það er einhver afmælisbóla að ganga núna, Viktor er endalaust í afmælum og svo er hans líka alveg að koma .. 21. okt ;)

Sigga var líka að koma frá úglandinu og ég fékk æðislega peysu frá henni sem ég er búin að vera í í allan dag. Fékk líka ekta saltpillur sem ég elska, þarf bara að koma mér á fyllerí því þær eru æði í þynnku ;) ..

Hafið það gott og munið að aðgát skal höfð í nærveru sálar ..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stella Rán

Fínasti sófi, get samt ekki ímyndað mér að það sé gott að klessast í honum.

Það er gott að vera feitur, hef það frá áreiðanlegum heimildum að karlmönnum finnst betra að sofa hjá mjúkum konum.. hehe..

Stella Rán, 8.10.2008 kl. 22:31

2 identicon

Heyr heyr....ég er mjög mjúk og það er tótallí svalt....sófinn er líka tótallí svalur.

var að borða hlaupkalla og hlusta á geir haarde

namm

olla í norge (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

he he þetta er bara fyndinn sófi

sætur. 

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 9.10.2008 kl. 16:45

4 identicon

FLOTTUR SOFI

rosa dogg (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband