Club Egilsbúð - Nesk city

GæsamammaÞetta er sko dagurinn ! Stella sæta verður gæsuð í mjög léttri útgáfu. Hún slapp ótrúlega vel og þær hinar sem ætla að gifta sig mega ekki búast við sömu meðferð .. Við ákváðum bara að gera okkur allar að fíBlum, árangurinn hangir í Olís og Sún ** Svo er það bara djamm í kvöld !! ALLIR Á BARINN !! Þegar 25plús hópurinn er á ferðinni þá er sko pottþétt stuð .. Hér er Razz og bjór í ísskápnum, tilbúið til notkunarJoyful 

Annars er ég að pakka .. Og komst fljótlega að því að ég þarf stærri tösku því ormurinn ætlar með hjólabretti með sér út. Ég sem var svo glöð yfir því að þurfa bara 2 litlar töskur, miklu betra en að hafa eina stóra. Má maður nokkuð fara með hjólabretti í handfarangur ?? Held ekki ..

Fór í afmæli til Önnu í gær, úff hvað ég át mikið ! Takk kærlega fyrir mig elsku Anna .. Það væri nú ekki slæmt að hittast í afgöngum á sunnudaginn .. He he .. Núna ligg ég bara uppí rúmi og hangi í tölvunni. Viktor fór út eld snemma og býst ég ekkert við honum fyrr en 11 í kvöld, svoleiðis hefur það allavega verið í vikunni. Ætti kannski að gefa honum e-ð róandi **

Sjáumst í kvöld ..

Er með bumbu sem ég hef ekki tekið eftir áður Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður að segja frá djamminu 

Ligg í sólinni á Brávallagötu, ekki slæmt.... vantar þig með góða hárlykt!

Halldóra (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband