I´m back .. ..

Hæ og halló mínir kæru bloggvinir Heart Ég er komin aftur .. Sé fyrir mér mikið fagnaðarlæti, hæ hó og jibbí jei og allt það ** koma svo ! Ennnnnnnnnnnnnn ástæðan fyrir bloggleisi mínu er að ég er búin að vera tölvulaus í mánuð, týndi snúrunni til að setja tölvuna í samband fyrir mánuði síðan og hef bara ekki nennt að hafa fyrir því að fá mér nýja fyrr en núna. Verð víst að hafa tölvu í vinnunni og í skólanum í vetur, en eitt get ég sagt ykkur vinir mínir kærir ; ROSALEGA ER GOTT AÐ VERA EKKI MEÐ TÖLVU Á HEIMILINU !! Lofa ** Sigurvíma

Hérna er smá sýnishorn frá sumrinu .. Viktor með bikarinn sem þeir unnu á Nikulásarmótinu, þeir lentu í þriðja sæti þessir massar ..

 

 

 

 

 

Kajak

Hérna er svo orkuboltinn á kajak. Bjartur bauð honum að koma með sér og auðvitað var slegið til. Það kom síðan vindur stuttu seinna og flestir enduðu í fjörunni .. He he en bara gaman af því, Bjartur hafði allavega nóg að gera. Viktor náði að velta sér úr bátnum bara fyrir mömmu sína og hoppaði síðan í sjóinn rétt áður en við fórum heim.

 

 

Tenerife 2008

Hérna er svo ein fyrir Þóru og Sólveigu sem eru á leiðinni í paradís eftir "nokkra" daga. Tenerife er sko algjör draumur í dós !!

 

 

 

 

Núna vorum við að koma úr grillveislu í Jónulundi, pabbi grillaði í liðið og það var sko ekkert slor .. Lambalæri, BBQ rif og sjávarréttasúpa .. úff hvað þetta var gott hjá kallinum. Sólmundur og co eru þarna núna og það er sko alltaf jafn gaman að hitta þau, munaði ekki miklu að við kæmum heim með auka barn en sömdum um að bjóða þeim systrum hingað á Nesk á morgun í staðin. Við Sigga ætlum bara að halda gott partý ( sleep-over ) því þau eru svo hrikalega góð saman frændsystkinin. Margt skemmtilegt framundan, götugrill, fótboltamót á Djúpavogi og kannski smá afmælisteiti hjá Þóru gömlu .. Maður lætur sér sko ekkert leiðast ! Og mig langar í útilegu, búin að fara á Franska og í Atlavík nýlega svo það þarf að vera e-ð annað .. Hugmyndir ?? Hverjum langar í útilegu þarnæstu helgi :::

Jesús hvað þetta er langt og ég gæti sko sagt miklu miklu meira !! Hætt og farin að sofa ** Vinna á morgun ** Hlakka bara til Tounge

Góða nótt og sofið rótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djö....gleymdi að þú ættir blogg. Skoðaðu nú brúðkaupsmyndir hjá MAximusi..... GÓÐA NÓTT BÆÐI. Kysstu Viktor frá okkur!

 frænkz

Olla frænkaðín (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband