27.8.2008 | 22:39
Tekin .. í ..
Já haldið þið ekki bara að ég hafi verið tekin áðan .. og ekkert dirty ! Bara af litlum löggumanni sem var held ég bara með móral yfir því að hafa tekið mig .. he he .. Mér fannst það nú bara gott hjá honum, maður á ekki að keyra hratt ..
Fór líka til tannsa í dag svo þetta verður pínu dýr dagur svona yfir heildina .. Kíkti á RFJ til Jóns Hafliða frænda, hann er æðislegur tannlæknir .. Enda komin af góðum ættum ;)
Svo er Viktor farin að æfa á bassa, ætlaði ekki að ná honum út frá Jóni Hilmari í dag .. Og honum finnst óóógeðslega langt þangað til að hann fer aftur á föstudaginn .. Byrjar vel .. Núna þarf ég bara að finna mér bassa til að kaupa svo hann verði nú klár í hljómsveitina sem er í myndun. Verst að það eru í boði 3 trommuleikarar
Langaði að sýna ykkur hana Tinnu sætu frænku mína, algjör bjútíbolla þessi stelpa. Sigga tók þessa mynd fyrir ljósmyndasamkeppni, þemað var grænt !
Grænt grænt grænt er .. ..
Athugasemdir
HE HE HE... Æ en leiðinlegt fyrir þig.
Maður gleymir þessu samt seint þegar að maður er tekin og fær síðan sektina!
Við vitum það samt alveg báðar hver verður á trommum ef þar að kemur er það ekki;) Viktor verður flottur á bassanum!
kveðja Þóra babe.
Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 27.8.2008 kl. 23:26
úff það er svakalegt að vera tekinn í dag Viktor verður ekkert smá flottur bassaleikari það er ekki mikil ánægja með blokkflautu hér á bæ vill frekar gítar Systir þín er snillingur í myndunum þetta er svo sæt mynd af Tinnu
Sjáumst
Sigga Magga
Sigga Magga (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 18:32
He he .. Ég lét Viktor æfa á blokkflautu fyrsta árið, engin svakaleg hamingja. En þeir sem hafa e-ð vit á þessu mæla með þessu, svo gott að læra á nóturnar og svona ..
Og Þóra, ætli það verði ekki trommu inntökupróf
Hrafnhildur Þórarinsdóttir, 29.8.2008 kl. 20:20
er hann þá hættur á trommur í bili?
Oll frænka í Noregi (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.