Ahhh ..

Loksins loksins .. Viktor er komin heim Grin Mikið er ég glöð .. Við erum búin að brasa ýmislegt í dag þó svo að hann sé mest búin að vera úti að leika sér við vini sína sem hann saknaði mikið. Við sóttum okkur smá möl í garðinn, horfðum á Kalla á kajak í ánni og prinsinn fékk að keyra aðeins ! Rosa gaman, ekkert mál að leyfa honum að taka smá í þegar maður er á sjálfskiptum bíl. Eftir ferðina þá sagði hann mér að hann væri nú ekki vanur að fá að stíga á bensíngjöfina hjá pabba sínum ** úps * Svo er það bara pizza og kósý í kvöld ..  

Akureyri .. Já hvað get ég sagt, mikið borðað, mikið keypt (þurftum að nota pallinn á leiðinni heim) og mikið slakað á. Við vorum nú í rólegri kantinum þarna, við t.d. ældum ekki á götuna eða brutum flöskur ! Það var inn þarna .. eh he .. Við fórum á Sex and the city í bíó, vá hvað hún er skemmtileg. Ég er ekki frá því að mig hafi langað til að vera ástfanginn þessa tvo tíma sem myndin var. Á föstudaginn fórum við á smá bar-rölt .. Kíktum á Kaffi Karólínu með Dýrunni og co.

Laugardagskvöldið var svo sófa / bjór stemmning á Mýrargötunni Joyful Ljúft

Gaman að sjá hvað margir kíkja hingað inn 

 8 dagar í Tenerife Heart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stella Rán

úúúúú..... bara 8 dagar!!!!

Stella Rán, 15.6.2008 kl. 19:56

2 Smámynd: Hrafnhildur Þórarinsdóttir

ó já .. næstum 7 núna

Hrafnhildur Þórarinsdóttir, 15.6.2008 kl. 23:16

3 identicon

hehehe var einmitt að skoða veðrið þar  núna , það er 19¨hiti akkurat núna þar nice

æ sá tilboð sem er svoooooo freistandi, 160.000 fyrir alla fjölsk til Kanareyjar í 2 vikur

Steinunn (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband